Litbrigði samfélags
sunnudagur 6. maí 2012
Myndlistarfélagið Sólon verður með myndlistarsýningu í Gúttó í Sæluviku Skagfirðinga 2012.
Sýningin er samsýning listamanna í Sólon, listamanna úr Skagafirði og nágrenni og er nú haldin fjórða árið í röð í Sæluviku.
Opnunartímar verða frá 16:00–19:00 virka daga og frá kl. 14:00–18:00 um helgar.
Hlökkum til að sjá sem allra flesta Skagfirðinga, nærsveitamenn og Sæluvikugesti.
Verið hjartanlega velkomin.
