Óskað eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2024

Rögnvaldur Valbergsson, handhafi Samfélagsverðlauna Skagafjarðar 2023 ásamt eiginkonu sinni Hrönn Gu…
Rögnvaldur Valbergsson, handhafi Samfélagsverðlauna Skagafjarðar 2023 ásamt eiginkonu sinni Hrönn Gunnarsdóttur.

Samfélagsverðlaun Skagafjarðar verða veitt í níunda sinn á setningu Sæluviku í Safnahúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 28. apríl nk. en Samfélagsverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn árið 2016.

Skagafjörður óskar eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar, en samfélagsverðlaunin eru árlega veitt einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.

Tilnefningar eru sendar inn með því að fylla út rafrænt skjal en einnig er í boði að senda tilnefningar á netfangið heba@skagafjordur.is eða skila skriflega í afgreiðslu Ráðhússins á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 17-21.

Frestur til þess að senda inn tilnefningar er til og með 19. apríl nk.

 

Eftirtaldir hafa verið sæmdir Samfélagsverðlaunum Skagafjarðar fyrir sinn þátt í að efla skagfirskt samfélag:

2023 - Rögnvaldur Valbergsson

2022 - Helga Bjarnadóttir

2021 - Stefán R. Gílsason

2020 - Helga Sigurbjörnsdóttir

2019 - Geirmundur Valtýsson

2018 - Hjónin Árni Stefánsson og Herdís Klausen

2017 - Kristmundur Bjarnason

2016 - Stefán Pedersen

 

Smelltu hér til að senda inn tilnefningu