Setning Sæluviku í Safnahúsinu

Setning Sæluviku Skagfirðinga fer fram í Safnahúsinu á Sauðárkróki kl. 13. Á dagskrá er m.a. afhending Samfélagsverðlauna Skagafjarðar, Vísnakeppni Safnahússins og formleg opnun sýningar á ljósmyndum úr safni Stefáns Pedersen eða Stebba Ped. Tónlistarflutningur í boði Tónlistarskóla Skagafjarðar. Kaffi og terta í boði fyrir gesti. Verið velkomin í Safnahúsið!

Dags
sunnudagur, 28. apríl
Klukkan
13:00
Hvar
Safnahúsið á Sauðárkróki