Styrktarhlaup Einstakra barna

Hlaupahópurinn 550 Rammvilltar blæs aftur til styrktarhlaups fyrir félagið Einstök börn. Upphitun hefst við Sundlaug Sauðárkróks kl. 13:30 og hlaupið hefst kl. 14:00.

Tvær leiðir verða í boði, 3 og 5 km, sem hægt er að stytta eða lengja að vild.

Þátttakendur eru hvattir til að mæta í litríkum fötum í anda Einstakra barna. Hlaupum, löbbum eða hjólum saman - öll velkomin!

Dags
miðvikudagur, 1. maí
Klukkan
14:00
Hvar
Sundlaug Sauðárkróks