Sumarsælukaffi fyrir eldri borgara

Í tilefni af vorkomu með hlýindum og hækkandi sól bjóða nemendur yngsta stigs Árskóla eldri borgurum í Skagafirði að þiggja sumarsælukaffi milli kl. 10:00 – 11:00. Samveran verður í matsal skólans þar sem nemendur munu syngja nokkur lög. Gengið er inn um aðalinngang að austan.

Dags
fimmtudagur, 2. maí
Klukkan
10:00-11:00
Hvar
Árskóli